Atlas international hefur starfað síðan á seinni hluta áttunda áratugarins. Allt frá því að við seldum okkar fyrstu hús árið 1977 hafa markmið okkar verið þau sömu. Við kappkostum að bjóða eins fjölbreytt úrval eigna og fáanlegt er á markaðnum. Margir hópar innan fyrirtækis okkar hjálpa þér við að kaupa réttu eignina. Við erum bæði með stærstu þjónustumiðstöðina á markaðnum og getum líka boðið þér húsgögn úr húsgagnaverslun okkar.
Við erum með fjölbreyttustu eignirnar á Costa Blanca, Costa Almeria og á Kýpur. Hvort sem þú ert að kaupa þér fasteign á Spáni eða Kýpur getum við hjálpað þér til að láta kaupin ganga eins vel fyrir sig og mögulegt er. Allar fasteignir sem við bjóðum henta bæði til fastrar búsetu og sumarleyfisdvalar og eru auk þess góð fjárfesting á þessum fögru stöðum.
Á næstum 30 árum höfum við eignast meira en 65.000 trygga viðskiptavini. Undanfarin ár hafa miklar breytingar orðið og bæði Spánn og Kýpur eru viðurkenndir sem sérlega heilsusamlegir staðir. Lífshættir þar eru engu líkir og efnahagslegar framfarir í báðum löndunum gera það að verkum að fasteignakaup þar eru örugg og góð fjárfesting.