Atlas Tax

AtlasTax er deild innan fyrirtækis okkar sem sérhæfir sig í reikningshaldi fyrir húseigendur. Hvort sem þeir búa sjálfir í húsinu eða ekki. Það er stærsta fyrirtækið á sínu sviði í Torrevieja og býður upp á sanngjarnt verð. Sérfræðingar okkar láta þér í té alla þá lögfræðiaðstoð og leiðsögn sem þörf er á til að ganga frá samningum um kaupin. Innifalin er athugun á afsölum og þinglýsing. Þeir munu sjá um nauðsynleg viðtöl fyrir þína hönd svo þú getir fengið lyklana að nýja spænska húsinu þínu án erfiðleika.

Eftir að þú hefur gengið frá kaupum á eigninni verða þeir umboðsmenn þínir á Spáni og fylgjast með sköttum og skyldum fyrir þig, hvort sem þú býrð á Spáni eða ekki.

Ef þú átt eign á Spáni getur þú þurft að borga bæði tekjuskatt og eignaskatt til spænskra yfirvalda. AtlasTax fyllir út öll eyðublöð fyrir þig, til að þú getir greitt á réttum tíma.

Þegar þú tekur upp búsetu á Spáni munu reikningshaldarar þínir skila skattskýrslu til skattyfirvalda svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af að fylla út flókin spænsk eyðublöð.

AtlasTax hjálpar þér við umsókn um dvalarleyfi, sem er nauðsynlegt að hafa ef gert er ráð fyrir að dvelja meira en sex mánuði á ári á Spáni.


Atlas International provides legal advice when buying your property in Spain.

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan