Fallegar strendur

Ýmsar gerðir af baðströndum sem hlotið hafa “bláa fánann” eru á Kýpur. Til dæmis má nefna Coral Bay, sem er vel fallin til að slappa af með allri fjölskyldunni. Þar eru langar sandstrendur og vatnið er grunnt.
Fyrir ofan hina löngu og hlykkjóttu Kourion Beach, sem er 20 kílómetra fyrir vestan Limassol, stendur tilkomumikið hringleikahús frá 2. öld.

Nauðsynlegt er fyrir þá sem hafa áhuga á klettaklifri að fara til Cape Aspro við Pissouri Bay. Baðstrendurnar þar í kring eru þær vinsælustu á Suður-Kýpur. Hinn frægi Aphrodite steinn er nokkra kílómetra fyrir vestan Pissouri og þar er sagt að Aphrodite hafi stigið upp af öldunum.
Cape Greko á Ayia Napa er frábær staður fyrir froskköfun og aðrar neðansjávaríþróttir.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan