Við vitum að að best er að kynnast andrúmsloftinu á Kýpur af eigin raun og Atlas International vill gjarnan bjóða þér í kynnisferð þangað. Fjögurra eða fimm daga ferð þangað gerir þér fært bæði að skoða úrval okkar af fasteignum þar og að kynnast lífinu á einni af fegurstu eyjum Miðjarðarhafsins.
Kýpur gekk í Evrópusambandið í maí 2004 og síðan þá hefur eftirspurn eftir fasteignum þar vaxið stöðugt og verðhækkanir þar í fyrra voru um 18 %. Miklar áætlanir um langtímafjárfestingar eru í gangi með golfvöllum, smábátahöfnum og nýjum flugvöllum sem gerðar verða í samræmi við strangar kröfur umhverfisstofnana.
Náttúruleg fegurð Kýpur verður ósnert og framtíðin tryggð svo það er ómaksins vert að fjárfesta í þessum heimshluta. Fyrir þá sem vilja fá sem mest fyrir peningana fyrir sig og fjölskyldur sínar er gott að vita að það er enginn erfðafjárskattur á Kýpur. Allir skattar eru reyndar lágir. Hvort sem þú ætlar þér að fjárfesta á Kýpur í sumarhúsi eða setjast þar í helgan stein kemstu að raun um að þetta er eyja sem býr yfir mikilli sögu, menningu og fegurð sem gaman er að kynnast.
Við væntum þess að mega bjóða þig velkominn til Kýpur.