Margir trúa því að siðmenningin hefjist við matarborðið og að fjölbreytni sé krydd lífsins. Þetta á ágætlega við um Kýpur. Í fornöld var Kýpur þekkt fyrir munað sinn bæði af guðum og mönnum.
Mikilvægast í hverju þorpi á Kýpur er kaffihús staðarins. Þar hittast vinir og kunningjar og eyða tímanum við að spila kotru (backgammon). Ef þú vilt hafa kaffið þitt sterkt þá mun þér líka við kaffið á Kýpur.
Krár og veitingahús bjóða upp á alþjóðalega rétti en Kýpverjar eru samt stoltir af sinni þjóðlegu matargerð.
Ef þú pantar Meze (sem kostar venjulega minna en 10 CYP), þá færðu allskyns forrétti sem geta verið upp undir 20 skálar með ýmsum tegundum osta, tómötum, ólífum, hummus, smokkfiski, rækjum, gómsætum kjúklingabitum og reyktu svínakjöti og fylltum vínviðarblöðum.
Moussaka er er hefðbundinn kýpverskur réttur gerður úr lambahakki og nautakjöti með lögum af kartöflusneiðum og eggaldinsneiðum og borinn fram í leirskálum beint úr ofninum og kryddaður ríflega.
Souflakia eða kebab er annaðhvort lambakjöt eða svínakjöt sem er sneitt niður og ristað á viðarkolum og borið fram með lauksneiðum. Kjötin er stundum borið fram í Pitta brauði með jógúrt og lauk.
Kleftiko er vinsæl aðferð við að sjóða hægt og rólega kjöt, fisk eða grænmeti. Af öðrum þekktum réttum má nefna grillaðan eða steiktan nýjan fisk eins og t.d. synagrida, fagree, rauðröndung og silung.
Á Kýpur eru ræktaðar einhverjar bestu kartöflur í heiminum.
Á eftir þessu öllu geta komið allskyns ferskir ávextir. Appelsínur ræktaðar á staðnum, tangerínur, melónur, epli, fíkjur, plómur og granatepli eru bara dæmi um það sem fáanlegt er. Vinsæll hátíðaréttur á Kýpur er Souzoukko. Þá er hnetum dýft ofan í heitan greipsafa og hann látin harðna utan á þeim.