Golf

Hefurðu áhuga á golfi?
Atlas International býður upp á fjölbreytt úrval íbúða við Tsada og Secret Valley golfvellina. Til að fá frekari upplýsingar um golfvelli á Kýpur er best að hafa samband við sérfræðinga okkar, sem sjá um sölu fasteigna á Kýpur. Það er sérstaklega heppilegt veðurfar fyrir golf á Kýpur og eyjan er sífellt að verða vinsælli í golfheiminum.

Tsada golfklúbburinn.
Klúbburinn er í gróðursælum dal í útjaðri Paphos á lóð munkaklausturs frá 12. öld. Völlurinn fellur vel inn í náttúrulegar aðstæður á svæðinu. Vegna hæðarinnar, sem er 550 metrar yfir sjávarmáli, er jafnan svalandi andvari þar á sumrin. Donald Steel hannaði völlinn og hann var opnaður 1994. Hann er 18 holur og 6060 metra langur, par 72. Hann er aðeins 8 kílómetra fyrir norðaustan Paphos og 20 kílómetra frá flugvellinum við Paphos. Einnig eru tennisvellir, útisundlaug, veitingahús, barir og púttvöllur á svæðinu.

Secret Valley golfvöllurinn.
Secret Valley golfvöllurinn er mjög virtur golfvöllur við Petra tou Romiou í Paphos sem nýtur mikillar frægðar sem fæðingarstaður Aphrodite. Völlurinn er í fögrum dal, umkringdur trjálundum og fallegum klettamyndunum. Hann er 18 holur, 6.120 metra langur og par 72. Á svæðinu er golfverslun, veitingahús, golfskóli, æfingavöllur, tveir púttvellir og klúbbhús í Kýpverskum stíl.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan