Atlas International bjóða þig velkomin(n) til grísku eyjanna fögru. Við erum nú opinberlega búin að setja starfsemina af stað á Krít, Santorini og Paros. Þessar eyjar eru með þeim fegurstu í heimi og þú þarft ekki nema að ýta á einn hnapp til að kynnast þeim.

Við erum með fjölbreytt úrval af eignum. Allt frá eins herbergis íbúðum til þriggja eða fjögurra svefnherbergja lúxus einbýlishúsa með einkasundlaug. Við erum sannfærð um að hér getum við boðið þér allt sem þú þarfnast og fundið draumaheimilið þitt.

Á þessum eyjum er ekki bara hægt að kaupa dásamlegar tilbúnar eignir með aðstoð okkar hjá Atlas International heldur getum við líka veitt þér frábæra innsýn í þjóðlega gríska lífshætti

Við höfum eignir fyrir alla á grísku eyjunum. Alveg frá því að vera alveg niður við strönd og til þess að vera í kyrrðinni og rónni lengst uppi í sveit.

Skoðaðu hvað við höfum að bjóða og mundu að með því kemst draumahúsið þitt einu skrefi nær raunveruleikanum.

Eyjan Krít

Krít er ein af 13 héruðum á Grikklandi. Hún er stærsta eyjan sem tilheyrir landinu og sú næststærsta í austanverðu Miðjarðarhafi. Hún er 160 kílómetrum fyrir sunnan gríska meginlandið og falleg strandlengjan er yfir 1045 kílómetra löng


Eyjan Paros

Í miðjum Hringeyjaklasanum er hin undurfagra eyja Paros, íbúar eru um 10 þúsund og 120 kílómetra löng strandlengjan er draumastaðurinn í Eyjahafinu. Í friðsæld og kyrrð eru þar frjósamir dalir, ávalar hæðir og litlar kirkjur og klaustur á víð og dreif.


Eyjan Santorini

Hin heimsfræga eyja Santorini er syðsta eyjan í Hringeyjaklasanum á Eyjahafi, 63 mílur norður af Krít.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan