Strendur

Sumar af fegurstu baðströndum Miðjarðarhafsins eru á Ítalíu. Baðstrandarstaðir laða að sér sífellt fleiri ferðamenn og sagt er að ítalskar baðstrendur séu hreinasti fjársjóður. Margir hafa dvalið á ferðamannastöðum á Ítalíu á sumrin en nú vilja ýmsir taka upp fasta búsetu á Ítalíu. Hressandi sjávarloftið er þrungið heilnæmi og gefur tækifæri til að sleppa frá borgarlífinu.
Ítalíuskaginn nær útí mitt Miðjarðarhafið norðaustan við Túnis. Á 7600 km langri strandlengjunni eru sumar af fegurstu baðströndum Miðjarðarhafsins. Í vestri eru Ligurian hafið, Sardiníusund og Tyrrhenianhafið. Sikileyjarsund og Jóníska hafið í suðri og Adríahafið í austri.

Þegar búið er að skoða borgirnar og ganga á fjöll eru baðstrendurnar rétti staðurinn til að hafa það náðugt á. Oftast nær er sólskin þar og á þeim 7600 km af strandlengju sem Ítalía hefur yfir að ráða er auðvelt að finna staði þar sem sjávarhitinn er hæfilegur til sunds. Margar mílur af gullnum sandi, sem sumsstaðar er allt að 1 km á breidd. Sjórinn býður sóldýrkendum þægindi og öryggi. Litadýrðin er mikil og marglitir sólstólar eru þar í löngum röðum.

 


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan