Calabria

Calabria er hérað á Suður-Ítalíu á „tá“ Ítalíuskagans sunnan við Napoli.

Svæðið er fjöllótt með hin tignarlegu Pollino-fjöll í norðri, skógi vaxna Sila sléttuna um miðbikið og Serre og Aspromonte fjallgarðana í suðri og þar eru hundruð mílna af fagurri strandlengju.
 
Calabria hefur hingað til ekki notið mikillar athygli og þess vegna er fasteignaverð þar hagstætt, fjölbreytt menning, frábær Ítalskur matur og hundruð kílómetra af fallegri strandlengju og margar af hreinustu baðströndum Ítalíu.

Calabria er mjór skagi sem nær þrjú hundruð kílómetra út í Miðjarðarhafið. Hann er fremst á „skónum“ milli Tyrrhenia hafsins í vestri og Jóníska hafsins og Taranto flóans í austri. Messinasund aðskilur hann frá Sikiley og þar sem sundið er mjóst milli Capo Peloro á Sikiley og Punta Pezzo í Calabriu er það aðeins 3,2 kílómetrar. Þó sjórinn sé alls staðar nálægur í Calabriu er héraðið samt þekkt sem fjallahérað..

Þrír fjallgarðar eru þar: Pollino, Sila og Aspromonte. Allir eru þeir sérstæðir og með sitt eigið plöntu og dýralíf.

Pollino fjöllin í norðri eru ógreiðfær og óslétt og afmarka Calabriu á eðlilegan hátt frá öðrum hlutum Ítalíu. Sumir hlutar fjallgarðsins eru skógi vaxnir en á öðrum svæðum er lítill gróður. Í fjöllunum vex Bosnian furuafbrigðið og er það meðal annars í þjóðgarðinum í Pollino.

La Sila er stór og fjöllótt háslétta um það bil 1.200 metra yfir sjávarmáli og liggur eftir miðjum endilöngum skaganum, 2.000 ferkílómetrar að stærð. Hæsta fjallið er Botte Donato sem er 1.928 metra hátt. Mikið er af fjallavötnum og þéttum barrskógum á svæðinu. Skaginn mjókkar í Savutodalnum sem byrjar á Sila sléttunni og nær allt til Saint´Eufemiaflóa.

Voldugur Aspromonte fjallgarðurinn myndar syðsta hluta Ítalíuskagans og liggur sjór að honum á þrjá vegu. Þessi sérkennilegi fjallgarður rís hæst í fjallinu Montalto Uffugo sem er 1.995 metra hátt og þar eru margir manngerðir hjallar sem hallast í átt til sjávar.


 


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan