Það verður sífellt vinsælla að kaupa sér hús á Spáni og það er mikilvægt að búa sig vel undir fasteignakaup þar og reikna út hve miklu maður getur eytt, áður en farið er í skoðunarferð. Þannig geturðu ákveðið hvað þú getur keypt og látið taka frá draumahúsið þitt.
Hér á vefsetrinu og í bæklingum okkar geturðu kynnt þér verð á húsum á Spáni í evrum og reiknað út hve mikið þau muni kosta í íslenskum krónum. Gengið er að sjálfsögðu breytilegt en við reynum að hafa upplýsingarnar eins nýlegar og hægt er.
Kostnaður er u.þ.b 10% til 12% af verði eignanna. Hér fyrir neðan er listi yfir kostnaðarliði sem þú getur búist við að bætist við kaupverð eigna á Spáni.
IVA 7% (samsvarar virðisaukaskatti)
Bætist við verðið þegar húseignin er tilbúin, eins og tekið er fram í kaupsamningi (7% af fasteignamati).
Umsýslugjald Atlas International (u.þ.b. 28.000 kr. miðað við að pundið sé á 112 kr.) Gjaldfellur eftir að skrifað hefur verið undir kaupsamning við byggingaraðila. Á að greiðast til aðalskrifstofu Atlas.
Lögfræðikostnaður
Greiðist þegar byggingu er lokið. Fyrir gerð afsals og þýðinga fyrir yfirvöld.
Þinglýsingargjöld
Fyrir skráningu afsals og stimplun.
Lóðagjöld
Fyrir skráningu eignarinnar.
Tengigjöld
Fyrir tengingu vatns, rafmagns og skólplagna.
Plus valia
Til bæjaryfirvalda. Í samræmi við Spænsk lög ber söluaðila að greiða þennan skatt, en af nýbyggingum þarf kaupandi að greiða hann.
Transmission tax
Skattur til stjórnvalda sem er 0,5% af fasteignamati og ber að greiða við þinglýsingu.