Golfvellir

Campo de Golf Las Ramblas de Orihuela

Las Ramblas völlurinn er stórfenglegur, upphækkaðir teigar, mjóar brautir og hraðar flatir. Hér reynir á menn og hér er minnisstætt að leika. Las Ramblas þýðir uppþornaðir árfarvegir og það er mikið af þeim á vellinum. Þessi 18 holu völlur er í fjalllendi og það gerir hann áhugaverðan fyrir golfleikara sem vilja taka smá áhættu. Mismunandi högga er þörf í fjöllunum og það er rétt að geta þess að mikið er af trjám á vellinum og vatnstorfærum. Erfitt getur verið að leika í fjallahlíðunum en með því verður leikurinn áhugaverðari. Völlurinn er ekki mjög langur og útsýnið er dásamlegt. Nákvæmni er þörf.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan