Alenda golfvöllurinn er frábær par 72, 18 holu völlur sem er rétt við Miðjarðarhafið við Sierra de las Aguilas fjöllin. Allar brautirnar tengjast og stutt er frá flöt að teig svo ekki tekur langan tíma að fara hringinn og hann er upplagður fyrir golfspilara með hvaða forgjöf sem er.
Klúbbhúsið er endurbyggður sveitabær og þar er veitingasalur, búningsherbergi og golfverslun. Einnig er þar æfingabraut og æfingaflöt. Fyrstu 9 holurnar eru skemmtilegar og auðleiknar með breiðum brautum (auðveldar teigskotin) afmörkuðum af furutrjám og pálmum. Hins vegar eru seinni 9 holurnar erfiðari og góð einbeiting, tækni og nákvæmni er mikilvægari en löng teighögg.