Algorfa, sem er eitt af appelsínuþorpunum í Vega Baja, er á miðju Segura svæðinu. Það er í fögru og frjósömu sveitahéraði. La Finca Algorfa Golf er nýjasti golfvöllurinn í Alicante og sannkallaður gimsteinn með sitt fagra og stórkostlega útsýni, þar sem hann liggur í skugga Escotera fjallanna með útsýni til sjávar og saltvatnanna við Torrevieja.
José Ganceda teiknaði La Finca golfvöllinn sem er fjölbreyttur og með 18 holur. Á endanum verður hann hluti af 54 hola samstæðu sem verður gerð úr þremur golfvöllum. Núverandi lengd er 6.394 metrar og hann er par 72. Ef þú ert að leita að stað til að leika á í sveitinni, eða bara fallegu útsýni og vel gerðum golfvelli, þá er þetta staðurinn. Á La Finca golfvellinum eru fjölbreyttustu flatirnar af öllum golfvöllum á Costa Blanca. Þær eru alveg frá því að vera pínulitlar í það að vera risastórar. Einnig er þar aukahola þannig að ef loka þarf óvænt einhverri holunni, þá er samt hægt að ljúka við 18 holu hring.
Nokkur stöðuvötn eru á vellinum og lækir með reyrþöktum bökkum auka á fegurð hans og gera brautirnar erfiðari, þar sem margskonar vatnafuglar eins og endur og hegrar halda þar til. Einnig eru þar ólífutré og pálmar sem gefa vellinum ósvikið miðjarðarhafslegt yfirbragð.