Ef þú vilt flytja gæludýrið þitt með þér til Spánar þá skal ráðfæra sig við yfirdýralæknir á Íslandi.
Eftirfarandi á einungis við þá sem eru búsettir á Bretlandi:
Nýlega hefur tekið gildi ný reglugerð sem leyfir að komið sé með gæludýr til Spánar án þess að þau séu sett í einangrun. Athugið að sérstakar reglur gilda eftir því um hvaða dýr er að ræða. Til að koma til greina í þessu kerfi, verða dýrin að fara með flugi frá Heathrow, skipum frá Dover eða Portsmouth eða með lest um Ermarsundsgöngin. Pantið far með helstu flutningsaðilum eins og British Airways eða Iberia. Það er takmarkað pláss svo rétt er að panta með góðum fyrirvara. Það er ómögulegt að nýta sér P.E.T.S (Pets Travel Scheme) kerfið nema ferðast sé eftir þessum ákveðnu leiðum og ekki er hægt að koma aftur til Bretlands með einkaflugvél eða snekkju.
Það eru margir dýralæknar starfandi á Costa Blanca ströndinni og bjóða þeir þjónustu sína á sanngjörnu verði. Ef þú ætlar að flytja fyrir fullt og allt til Spánar er ráðlegt að skrá sig hjá dýralækni sem fyrst. Þá geturðu látið líta eftir gæludýrinu þínu og þér verður veitt ráðgjöf um allt sem máli skiptir. Þú þarfnast þessarar skráningar einnig ef þú ferð aftur til Bretlands. DEFRA hefur skipað svo fyrir að gæludýr skuli skoðuð af viðurkenndum dýralækni 24 tímum fyrir ferðina svo hægt sé að leita að flóm og sníkjudýrum.