Að vinna á Spáni

Ef þú ætlar að búa á Spáni til frambúðar er líklegt að þú viljir fá þér vinnu þar. Ráðningarskrifstofur eru fáar á svæðinu í kringum Torrevieja, svo það er líklega best að líta í blöðin á svæðinu, eins og t.d. Costa Blanca News og senda upplýsingar um þig til fyrirtækja sem þér líst á.

Vinnuveitendur á Spáni taka yfirleitt vel á móti útlendingum. Lög um vinnusamninga eru ströng og verkafólk er vel varið gegn misnotkun. Þú þarft að fá löglegan starfssamning frá vinnuveitanda þínum og lesa hann vel. Bráðarbrigða samningar eru til 3, 6 eða 9 mánaða og eftir það er ekki hægt að gera nýjan tímabundinn samning við þig. Annað hvort verður þú að fá ótímabundinn samning eða engan.

Laun eru yfirleitt lægri en á Íslandi, en það er mun ódýrara að lifa á Spáni og lífstíllinn er eftirsóknaverður.   Vinnuveitandi þinn sér um að greiða tryggingargjald og skatta, sem verður dregið af launum þínum. Tekjuskattur er mikið lægri en á Íslandi.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan