The Costa Blanca

Costa Blanca er sannkölluð Paradís á jörðu. Mildari vetur finnast vart og íþróttaiðkun og hvers kyns frístundagaman er auðvelt að stunda. Costa Blanca er því rétti staðurinn til að kaupa sér hús á. Aðalbærinn í suðurhluta Costa Blanca er Torrevieja og flestar baðstrendurnar þar hafa með réttu fengið viðurkenningu frá Evrópusambandinu fyrir þrifnað. Þetta er því upplagður staður til að eyða efri árunum á eða hafa annað heimili þar. Sunnantil eru grunn vötn og víðáttumiklar sandöldur en vogskorin klettaströnd að norðanverðu. Það er mjög vinsælt að kaupa sér hús á þessum ágæta stað á Spáni.

Mjög vinsælt er hjá köfurum að kafa í fagurbláum sjónum og skoða fjölbreytt neðansjávarlífið þarna. Sólsetrin eru fögur og litskrúðug og gleymast seint. Syðst eru hvítir klettar sem héraðið dregur nafn sitt af. Þarna er bæði lágvaxinn runnagróður og hávaxin tré. Rómantískir vitar og fornar rústir bera vitni um aldagamla menningu miðjarðarhafssvæðisins. Þó á svæðinu séu ágætir vegir, járnbrautarlestir, ferjuhafnir og þrír alþjóðaflugvellir, er Costa Blanca meðal óspilltustu svæða í Evrópu. Meðalhitastigið er á milli 18 og 28 gráður á Celsíus og loftslagið er meðal þess besta í heiminum að áliti Alþjóða Heilbrigðisstofnunarinnar. En þarna er líka að finna úrvalshótel, heilsu- og líkamsræktarstöðvar (spa), 19 golfvelli og hvers kyns vatnaíþróttir.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan