Hinar miklu vinsældir Benidorm stafa einkum af því að þar er eitthvað fyrir alla. Sjálft andrúmsloftið dregur að. Hvort sem um er að ræða íþróttaunnendur eða sólbaðsdýrkendur, á ferðalagi eða komna til að setjast að, er ánægjulegt að dveljast þar.
Fyrstu íbúarnir voru Márar, eins og víðast hvar á suðurströnd Spánar. Benidorm var áður fámennt fiskiþorp, en nú er þetta svæði orðið eitthvert það vinsælasta á Spáni. Baðstrendurnar í nágrenninu, fjöllin í kring og góðar samgöngur gera þetta að úrvalssvæði til að eiga hús á.
Benidorm er norðan við Hvítu ströndina, umkringt Sierra Helada fjallgarðinum í austri, Aitana í norðri og Tossal de la Cala í vestri, sem hlífir svæðinu fyrir vindum og tryggir heilnæmt og gott loftslag árið um kring.
Terra Mitica þemagarðurinn er vinsæl afþreying en hann er einn sá stærsti við Miðjarðarhafið. Einnig eru tveir vinsælir vatnagarðar og villidýragarður á Benidorm. Á kvöldin getur þú notið þess að heimsækja Benidorm Palace þar sem hægt er að sjá góð skemmtiatriði og borða góðan mat.
Í gamla bænum getur þú upplifað gamla tímann, gengið eftir steinlögðum strætum og heimsótt 200 ára gamla Iglesia de San Jaime sóknarkirkjuna eða lagt af stað í bátsferð yfir flóann til Benidorm eyjar sem er einnig þekkt sem Páfuglseyja þar sem hún er nánast eingöngu byggð fuglum (aðallega páfuglum). Þá eyju er hverjum fuglaáhugamanna nauðsynlegt að heimsækja.
Benidorm er í 40 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante flugvellinum og allar eignir okkar þar í grennd eru nálægt verðlaunaströndunum Poniente og Levante.