Costa de Almeria

Costa Almería hefur þangað til nýlega verið mjög afskekkt. Þetta sést vel á stórum óræktuðum svæðum og litlum óspilltum fiskiþorpum sem á sumum öðrum stöðum hefur verið breytt í ferðamannasvæði. Með bættum vegasamgöngum og góðu flugvallasambandi getur Costa Almeria nú boðið upp á eina fegurstu og óspilltustu ströndina á svæðinu.

Fasteignaverð hefur hækkað stöðugt undanfarin ár og með aukinni fjárfestingu hefur þjónusta batnað, en vöxturinn hefur verið takmarkaður svo þeir sem eiga eignir eða fjárfesta í þeim á svæðinu geta búist við að verðið haldi áfram að hækka.

Loftslagið í Costa Almería er einstakt. Mikið af ávöxtum og grænmeti í verslunum er frá Costa Almería. Sólskinsdagar eru 320 á ári og meðalhitinn er um 19 stig. Þarna er svo sannarlega hægt að sleppa við veturinn.

Norðan við Costa Almería eru skíðasvæðin í Sierra Nevada. Þar er snjór frá nóvember og fram í mars. Þú gætir farið á skíði að morgninum og slappað svo af á ströndinni seinni partinn. Fyrir þá sem vilja erfiða svolítið meira er hægt að fara á einhvern af mörgum golfvöllum á svæðinu eða stunda einhvers konar vatnaíþróttir.

Cabo de Gato er þjóðgarður Almeríu. Þar er að finna margar óspilltar baðstrendur og lítil þorp. Þar eru sannkölluð rólegheit.

 


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan