Staðsetningar

Vega Baja

La Vega Baja er syðsta héraðið í Alicante og nær allt til Elche í norðri, þar sem stærstu pálmalundir Evrópu eru og hinnar sögufrægu Orihuela borgar í suðri.  Áin Segura skiptir svæðinu og rennur í Miðjarðarhafið við Guardamar. Þetta ósnortna svæði með sínum litlu þorpum sér borginni Alicante fyrir ávöxtum og grænmeti.

Dolores
Þorpið Dolores var stofnað árið 1715 þegar mýrarnar í Vega Baja voru ræstar fram. Dolores er akuryrkjuþorp og það er vel þess virði að smakka á framleiðsluvörum þess, svo sem ávöxtum, sjávarafla og kjöti. Ein mesta hátíðin á Spáni fer þarna fram. Ágústhátíðin. Á þessari hátíð eru sýndar hestaíþróttir og þar keppa yfir 1.500 hestar.

Callosa de Segura
Callosa de Segura er eitt af minnstu þorpunum í Vega Baja. Þar er mikið af uppsprettulónum. Indæll staður til að hvílast á. Lónin eru um 18 gráðu heit og upplögð til að baða sig í þeim á heitum sumardögum. Svæðið er þekktast fyrir að þar eru ræktaðar Miðjarðarhafs sítrónur og appelsínur. Mikið er af þeim í Callosa og staðarmenn dást mikið að fegurð appelsínuakranna. Þorpið er nálægt Guardamar ströndinni og um það bil 25 mínútna akstur að flugvellinum í Alicante.

Catral
Landbúnaðarbærinn Catral er suðvestur af Alicante, aðeins um 20 kílómetra frá Guadamar ströndinni og 25 kílómetra frá Torrevieja. Vinsælasti staðurinn þar er Hondo Reservoir sem er náttúruverndarsvæði þar sem margir fara í gönguferðir. Áhrifa Mára gætir alls staðar í húsagerðarlist og nafnið Catral er komið úr márísku.

Almoradi
Bærinn Almoradi er norðan við ána Segura í 25 aksturmínútna fjarlægð frá Torrvieja og rétt við La Finca Algorfa golfklúbbinn. Þar er rík þjóðleg menning og margs konar þjónusta. Vel má sjá hinar ríku spænsku hefðir í hinni voldugu kirkju San Andrés og hinum kunna laugardagsmarkaði.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan

 


Hafðu samband My Atlas GB - EnglishIR - FarsiTR - TurkishAT - DeutschBE - FrançaisBE - FlemishDE - DeutschDK - DanskET - EstonianES - EspañaFI - SuomiFR - FrançaisIE - EnglishIS - IcelandicNL - NetherlandsNO - NorskPL - PolandRU - RussianSE - SvenskUS - English Veldu tungumál
Sérfræðingar í alþjóðlegri fasteignasölu
6961960

Leita að eign

Land kr.

 Ný eign   Eign í endursölu  SEARCH Háþróaður leita