Staðsetningar

Guardamar

Skógar, hæðir og baðstrendur í fullkomnu samræmi gera Guardamar Del Segura að Paradís Costa Blanca. Bærinn Guardamar, þar sem íbúarnir eru aðeins rúmlega 11 þúsund er við mynni árinnar Segura.

Íkornar, svanir og fiskar eru við 12 kílómetra langa strandlengju með fjölbreyttum trjágróðri, gosbrunnagarði o.fl. Guardamar er á góðum stað ofan við Vega Baja og mörgum líkar vel að búa þar.

Guardamar á tilveru sína ánni Segura að þakka. Við ármynnið eru stundaðar fiskveiðar og þar liggur leiðin til Molino de San Antonio. Á veitingastöðunum má fá úrvals rækju og prýðilega hrísgrjónarétti eins og best gerist í Alicante.

Sandhólarnir sem gerðir eru bæði úr sandi úr ánni Segura og frá sjónum eru mest áberandi náttúrufyrirbærið á svæðinu. Þar eru garðarnir Reina Sofia og Alfonso XIII og í þeim er gaman að rölta um eða hjóla. Líka er rétt að minnast á ræktarlandið á svæðinu og að fylgjast með hegrum og öðrum vaðfuglunum sem eiga varpstöðvar þarna.

Ef þú hefur gaman af íþróttum býður Guardamar upp á alls konar íþróttir eins og siglingar, seglbrettareið, vatnaskíðaferðir, köfun, kajakferðir, sjósleðaferðir o.s.frv. Í Marina de las Dunar við mynni árinnar er boðið upp á þetta allt og 498 bryggjupláss.

Fjölmörg íþróttamannvirki eru í Guardamar del Segura. Stærst þeirra eru Las Rabosas íþróttahöllin og hin glæsilega íþróttamiðstöð bæjarins þar sem er sundlaug í Ólympíustærð, 3 knattspyrnuvellir, körfuboltavellir, innanhúss fótboltavellir, tennisvellir, pelota vellir og fleira. Höfnin er mikið aðdráttarafl fyrir ferðafólk í Guardamar del Segura. Hún er við mynni árinnar Segura sem er óviðjafnanleg náttúruperla.

Þar eru 494 skipalægi og öll sú þjónusta sem bátahöfn má prýða. Þar er tveggja kílómetra braut í ánni fyrir smábáta og áhættulaust svæði fyrir allskyns vatnaíþróttir. Þarna er upplagt að byrja eða enda daginn því í Guardamar er gott að dvelja árið um kring.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan