Property in Turkey

Tyrkland er í Suð-Austur Evrópu og Suð-Vestur Asíu. Höfuðborgin er Istanbul, eina borgin í heiminum sem er í tveimur heimsálfum. Þetta eitt sýnir að hér er um að ræða óvenjulegt og sérstakt land. Hæsta fjallið er Ararat (5.166 m), hið fræga fjall úr Biblíunni. Landamæri Tyrklands liggja að átta löndum og strandlengjan er 7.200 kílómetrar. Ein af áhugaverðum staðreyndum um Tyrkland er að það er stærra en Texas í Bandaríkjunum og af því má sjá hver risastórt landið er.

Tyrkland er þekkt fyrir listalíf sitt, langa og fjölbreytta sögu og fagurt landslag. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi í hinum fjölbreyttu héruðum Tyrklands. Allt frá því að gramsa á einu af mörgum markaðstorgum og til þess að kafa við undurfagra strönd. Hvert hérað í þessu sögufræga land hefur sín eigin sérkenni, landslag og matarvenjur og það er ekkert undarlegt þó þeir sem heimsækja Tyrkland fái aldrei nóg.

Tyrkland er umkringt fjórum höfum. Þeirra á meðal eru Miðjarðarhafið, Eyjahafið og Svartahafið. Með meira en 7000 kílómetra strandlengju, þar sem hægt er að njóta lífsins, er það algjör paradís fyrir þá sem njóta strandlífsins. Jurta og dýralíf er fjölbreytt og fjöldi þjóðgarða um allt landið tryggja að það er alltaf eitthvað að sjá á hvaða árstíma sem er.

Í þessu fallega landi hafa verið meira en 20 mismunandi menningarsamfélög í 10 þúsund ára sögu þess. Margar minjar á enn eftir að finna. Hér má þó finna margar sögulegar minjar. Hof, forn leikhús, kirkjur, moskur, grafhvelfingar, styttur af fornum guðum, söfn og fjölda dýrlegra og fagurra halla og kastala þar sem eitt sinn bjuggu mestu valdamenn heims. Hér blandast fortíð og nútíð á skemmtilegan hátt. Víða lifir fólk á milli nútímans og fornrar hefðar og sumum líkar það vel.

Margir flugvellir eru í landinu og þangað fljúga mörg af stærstu flugfélögum heimsins. Þeir helstu eru vellirnir í Bodrum og í Izmir. Þeir hafa báðir verið endurnýjaðir fyrir skömmu og eru ágætlega útbúnir og standa öðrum flugvöllum í Evrópu ekkert að baki og er það kostur frá sjónarmiði fjárfesta.

Fáðu senda bæklinga

Brochure Request

Við höfum nýlega gefið út nýjan Tyrklandsbækling með upplýsingum um stórkostlegar nýjan eignir sem hægt er að flytja inn í strax. Þú ættir að panta þennan ókeypis bækling núna.


Tyrkland Staðsetningar

Við höfum nokkur frábær svæði sem hægt er að kaupa eignir á. Bæði við ströndina og á vinsælum stöðum til fjalla. Athugaðu nýjustu fjárfestingarsvæðin okkar, því við viljum gera öllum til hæfis.


Lífstíll

Ertu að leita þér að nýjum lífsstíl með miklum möguleikum? Þú þarft ekki að leita lengra. Tyrkland býður allt. Ýttu hérna til að finna út hvers vegna Tyrkland er svona góður staður til fjárfestinga.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan