Skemmtilegar staðreyndir um Tyrkland

Vissir þú að………………………

• Eina borgin í heiminum sem er í tveimur heimsálfum er Istanbul

• Ephesus og Halikarnassos, tvö af sjö furðuverkum veraldar eru hér

• Fjöldi frægra persóna sögunnar fæddist í Anatólíu, t.d. skáldið Hómer, Mídas konungur, Heródótus og Páll postuli

• Júlíus Sesar sagði hin frægu orð sín: „Vení, vídí, vící“ sem þýdd hafa verið með „ég kom, ég sá, ég sigraði“, í Tyrklandi þegar hann sigraði Pontusbúa forðum við Svartahafið

• Af Evrópuþjóðum var Tyrkland fyrst til að hefja kaffineyslu

• Trojan stríðin frægu áttu sér stað í Tyrklandi nálægt þeim stað þar sem tréstytta af Trójuhestinum stendur enn í dag

• Tyrkir gáfu Hollendingum sína frægu túlipana

• Sánkti Nikulás sem betur er þekktur sem Sánktikláus eða jólasveinninn fæddist í Anatlaya á Miðjarðarhafsströnd Tyrklands

• Sagnir herma að örkin hans Nóa hafi strandað á fjallinu Ararat í Tyrklandi

• Esóp hinn frægi dæmisagnahöfundur fæddist í Tyrklandi

•  Hver sá sem kemur til Tyrklands, að smábörnum meðtöldum, þarf að greiða tíu punda áritunargjald. Sú áritun gildir í þrjá mánuði og að þeim loknum þarf að greiða 10 punda gjald aftur o.s.frv

• Tyrkland er eitt af fáum ríkjum sem taka við öðrum gjaldeyri en sínum eigin. Margar verslanir og veitingahús taka við sterlingspundum, evrum og dollurum


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan