Af hverju ætti að kaupa í Tyrklandi?

Þýðingarmikið er að vita hvers vegna það er svona hagstætt að kaupa og fjárfesta í Tyrklandi, ef ákveðið er að taka stökkið. Hér eru helstu ástæðurnar fyrir því að þetta er upplagt fyrir þá sem ætla sér að kaupa fasteign erlendis.

* Tyrkneski fjárfestingarmarkaðurinn hefur tekið mikið við sér eftir að lögum var breytt um eignarhald útlendinga á fasteignum. Þessi breyting var gerð árið 2003 og allar götur síðan hefur fasteignaverð farið sífellt hækkandi.

* Verðlag hefur hækkað mjög í öðrum Miðjarðarhafslöndum og þessvegna hefur áherslan færst yfir á Tyrkland.

* Helstu verktakar við Miðjarðarhafið hafa nú fengið aukinn áhuga á landi og eignum í Tyrklandi og leitast við að ná forskoti á keppinauta sína með því að eignast eins mikið jarðnæði þar og mögulegt er.

* Mikill áhugi er erlendis á fjárfestingum í Tyrklandi og tyrknesk stjórnvöld leitast við að færa lög og reglugerðir til samræmis við Evrópu og vonast eftir fullri aðild að Evrópusambandinu fljótlega.

* Þetta sést t.d. á því að Tesco hefur nýlega fest kaup á stórri verslanakeðju í Tyrklandi og fimm tyrkneskir bankar hafa fyrir skömmu sameinast HSBC og Citibank. Helstu bílaframleiðendur í Evrópu eru líka að byggja verksmiðjur hér og hafa aukið þensluna á fasteignamarkaðnum.

* Á minna en fjórum arum, eða frá því í júlí 2003, hefur fjöldi breta sem á fasteignir í Tyrklandi aukist úr tæplega 3.000 í um það bil 15.000. Þetta er mjög örvandi fyrir þá sem hyggjast fjárfesta í landinu.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan