Loftslag

Oft er sagt að hægt sé að upplifa allar fjórar árstíðirnar sama daginn í þessu dásamlega landi. Á vorin geta þeir ferðamenn sem eru snemma á ferðinni verið í sólbaði á suðurströndinni á sama tíma og hægt er að vera á skíðum í fjöllunum í norðri. Meðalhitinn á sumrin er 30 – 40 gráður og á veturna fer hitinn niður í svona 10 – 19 gráður, svo loftslagið er þægilegt allan ársins hring. Sólböð er hægt að stunda í níu mánuði á ári.

Svæðin við Svartahaf glitra í vorsólinni og regnskúrir eru stundum uppi í fjöllunum. Í suðaustur Anatolíu er enn snjór yfir öllu á vorin þó annars staðar í Tyrklandi sé sólskin. Sums staðar í Tyrklandi geta verið 20 gráðu hitasveiflur sama daginn, svo hér er sannarlega eitthvað fyrir alla.

Eyjahafs og Miðjarðarhafssvæðin eru sannkölluð Paradís yfir hásumarið. Þúsundir manna safnast saman við ströndina og njóta hins heita og þurra hitabeltisloftslags. Veturnir eru mildir á þessu svæði svo fólk flykkist hingað allt árið.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan