Matargerð

Gestir sem kynnast tyrkneskri matargerðarlist í fyrsta sinn verða oft hrifnir af henni. Flestir tengja þetta land við hið illræmda kebab, sem í Tyrklandi er mjög frábrugðið því sem tíðkast annars staðar. Lambakjöt er mest notaða kjötið í Tyrkneskum eldhúsum og þar eru hlutar þess festir saman og grillaðir yfir viðarkolum til að mynda “shish kebab”. Doner er kjötstykki úr lambakjöti, sem látið er hanga lóðrétt og snúast við heitt grill.

Eggaldin eru einnig mikið notuð í Tyrklandi og má sjá þau í allt frá eggaldinsalati (Patlican Salatasi) til fylltra eggaldina (Patlican Dolmasi) Oft eru þau notuð með lauk, hvítlauk og tómötum og reidd fram köld sem Imam Bayildi. Borek brauð er einnig vinsælt hér og þessi þunnu, stökku og loftkenndu brauð eru gjarnan fyllt með kjöti, osti eða kartöflum og vafin saman með allskonar ljúffengri fyllingu.

Óþarft er að taka fram að Tyrkir elska kaffi og þeir voru fyrstir Evróðuþjóða til að kynna það fyrir löndum sínum. Oft er það reitt fram þykkt og svart í litlum bollum og er sannarlega dásamlegt. Tyrkneskt sælgæti er einnig heimsþekkt og mjólk af viðkomandi svæði er gjarnan grunnefnið í því. Baklava er frægast af þessu og þú verður að prófa það ef þú ferð til Tyrklands.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan