Ekkert vandamál er við að taka gæludýr með sér til Tyrklands ef þess er gætt að taka með í ferðina heilsu og bólusetningavottorð. Vottorðið má ekki vera gefið út meira en 10 dögum áður en ferð hefst. Ekki er nauðsynlegt að löggilda þessi skjöl í tyrkneska sendiráðinu ef eigandi fer sjálfur í ferðina.
Takmörk eru á því hve mörg gæludýr má flytja með sér til Tyrklands. Einn maður má einungis taka með sér einn kött, einn hund, eða einn fugl og í mesta langi tíu gullfiska. Varðandi önnur gæludýr er nauðsynlegt að leita til skrifstofu okkar um nánari upplýsingar. Hægt er að fara í kringum þessar reglur með því að fara mörg saman og þannig er hægt að taka með sér flest eða öll sín gæludýr í einu.
Athuga ber íslensk lög í þessu sambandi. Vel getur verið að auðvelt sé að fara með gæludýr utan en erfiðara að koma með þau heim aftur.