Akbuk er 70 kílómetra frá flugvellinum í Bodrum og aðeins 18 kílómetra frá ferðamannastöðunum í Didim og Altinkum. Þetta er ágætur staður sem er miðja vegu á vinsælustu strönd Tyrklands. Hér er frábært að eyða sumarfríinu, náttúran óviðjafnanleg og rétt við hafið. Mikið er af vernduðum skógum á svæðinu og þar er hægt að fara í ágætar gönguferðir.
Strendurnar eru hreinar og mikið af smáflóum þarna sem gaman er að skoða. Hér er oftast hlýtt en gola getur verið við sjóinn. Þar er þess vegna upplagt að kæla sig í sumarhitunum. Hér eru mörg svæði sem nútíma ferðamannaiðnaður hefur ekki spillt og veitingastöðum og kaffihúsum sem bjóða hefðbunið fæði héraðsins í fallegu og þægilegu umhverfi fjölgar stöðugt.