Staðsetningar

Bodrum

Bodrum er frábær lítill hafnarbær á Eyjahafsströnd Tyrklands. Hér hafa menn yndi af að stunda fiskveiðar, byggja báta, vefa og rækta jörðina. Hér er allt með hefðbundnu sniði eins og sjá má á vinnandi íbúum þorpsins strax og komið er til Bodrum. Íbúarnir eru rúmlega 32 þúsund svo ekki er hætta á að mannþröng verði til trafala á svæðinu. Hér er líka flugvöllur.

Bodrum skaginn er við norðvestanverðan Gokova flóann gegnt grísku eyjunni Kos. Við kastala Sánkti Péturs, í miðbæ Bodrum, eru þröngar og langar verslunargötur. Í miðjum bænum er líka smábátahöfn og margir litlir veitingastaðir þar sem hægt er að fá vín og mat frá svæðinu. Næturlífið er líka fjörugt og mikið af börum og krám á sumrin.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan