Staðsetningar

Didim

Didim er lítill bær á vestanverðri Eyjahafsströnd Tyrklands og er vinsæll ferðamannastaður. Þarna eru langar sandstrandir, aðstaða til vatnaíþrótta, hótel og vatnagarðar. Hér eru fleiri náttúruperlur en víðast hvar í Tyrklandi og einnig Apollo hofið í Didyma sem er heimsþekktur og sögufrægur staður sem ferðamenn flykkjast til allt árið.

Fasteignaverð hér hefur verið á stöðugri uppleið og það er auðvelt að skilja hvers vegna. Didim hefur sitt eigið loftslag og segja má að hér sé sólskin allt árið. Sumrin eru heit og veturnir hlýjir og auðvelt að leigja húsnæði út. Baðstrendurnar eru jafnvel fullar af fólki í janúar.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan