Staðsetningar

Gumusluk

Gumusluk (borið fram gú-mús-lúkk) er hinum megin á Bodrum skaganum ásamt gríðarstórum mandarínulundum. Þetta er u.þ.b. í 20 mínútna fjarlægð ef farið er með bíl eða strætisvagni frá miðbænum í Bodrum. Þorpið er lífleg fiskihöfn og meðfram höfninni er mikið af veitingastöðum sem sérhæfa sig í fiskréttum og bjóða upp á fjölbreytt úrval af nýveiddu sjávarfangi.

Einu sinni var hér á svæðinu borgin forna Myndos og þess vegna er þetta í dag verndarsvæði þannig að engir bílar mega fara inn í miðju þorpsins. Sólsetrin vestast á svæðinu eru annáluð og þar er lítil eyja sem kölluð er Tavsan sem þýðir kanínueyja. Þaðan er hægt að ganga til Gumusluk eftir mjóum göngustíg úr steinum sem byggður var á tímum Hellena. Það er þó aðeins hægt á fjöru.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan