Syfjulegt þorpið Gundogan norðan við miðbæinn í Bodrum er einn af leyndum fjársjóðum Bodrum skagans. Þó það sé rétt við ys og þys stærri bæjarins hefur Gundogan tekist að halda sínum sjarma og sérkennum. Á strandlengjunni er hægt að stunda siglingar eða vera á seglbrettum og kvöldunum er hægt að eyða á einhverju af þeim veitingahúsum eða börum sem eru við ströndina.
Mjög vinsælt er að stunda köfun í þessu héraði Tyrklands. Víða eru námskeið í að kafa eftir svampi og ljósmyndun neðansjávar er einnig kennd. Gundogan er sögufrægur staður og með réttu er því haldið fram að þar séu elstu mannvistarleifar á skaganum. Í hellum og tjörnum í nágrenninu hafa fundist leirker frá bronsöld, steinaxir og hverfisteinar. Hellarnir eru nú opnir almenningi og rétt er að missa ekki af að sjá hina stórkostlegu dropasteina sem þar eru.