Staðsetningar

Turgutreis

Turgutreis er næststærsti bærinn á Bodrum skaganum og þar má kynnast hinu raunverulega lífi í Tyrklandi og einnig nútímaþægindum eins og við erum vön. Bærinn heitir eftir frægum samnefndum Tyrkneskum sjóliðsforingja sem uppi var á sextándu öld. Turgutreis er einkum þekktur fyrir þátttöku sína í umsátri Ottomana um Möltu. Á vesturlöndum er hann þekktur undir nafninu Dragut. Við brottfararstað hans nokkra kílómetra fyrir utan bæinn er frægt minnismerki sem er fjölsótt bæði af heimamönnum og ferðamönnum.

Í dag er bærinn miðstöð verslunar á vestanverðum skaganum. Vörum sem framleiddar eru í nágrenninu er safnað saman hér til flutnings um allan heim og hér eru fleiri bakarí en annars staðar í Tyrklandi. Hér er einnig að finna langar gylltar sandstrendur og hægt er að hafa það gott á veitingahúsum við ströndina.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan