Staðsetningar

Yalikavak

Yalikavak er mjög eftirsótt svæði og mikill fjöldi frægs fólks víðsvegar að úr Tyrklandi býr hér a.m.k. yfir sumarið. Fiskvinnsla er hér mikil og þetta er ein mikilvægasta veiðistöðin á Eyjahafsströnd Tyrklands. Einnig býr hér fjöldi svampkafara.

Höfnin er falleg með fjölda veitingastaða þar sem hægt er að fá sér drykk eða góðan mat og fylgjast með sólsetrinu. Fjöldi verslana er í göngugötum og þarna er margt að skoða. Vikulega er markaður á torginu þar sem til sölu eru vörur af svæðinu. Kaffihúsin á lítilli baðströndinni eru vinsæl þegar heitt er veðri og þar er gott að hvílast í nokkra klukkutíma. Gamlar hefðir og nýji tíminn blandast vel í rólegheitunum í Yalikavak.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan