Fjölskyldu baðstrandir

Children's Pool
Hafnargarður heldur sjónum hér kyrrum og gerir fullkomna baðströnd fyrir börn. Ströndin er líka vinsæl af köfurum því mörg sjávarrif eru við ströndina.Hægt er að sjá seli, sæljón og önnur sjávardýr á Seal Rock rétt sunnan við ströndina.

La Jolla Cove
Þessi litla, fallega baðströnd er á milli hárra sandsteinskletta. Sjávarlón og víkur henta vel til sunds og  köfunar. Hægt er að fara í lautarferðir á grasflatirnar í Ellen Browning Scripps garði í nágrenninu.

Seascape Shores
Breið sendin strönd og góður sjór gefa gott tækifæri til að stunda brimbrettareið, veiðar, sund, skokk, froskköfun og Frisbee leiki. Meðan Del Mar veðreiðarnar standa yfir er oft hægt að sjá þjálfara veðhlaupahestanna teyma þá um ströndina á morgnana.

Moonlight State Beach
Fjölskyldumiðuð baðströnd sem hentar vel fyrir sund, brimbretti og veiðar. Tennis og blakvellir eru í nágrenninu.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan