Imperial Beach
Þessi breiða og sendna strönd sem þekkt er sem „IB“ er mjög vinsæl hjá íbúum svæðisins. Eins og margar baðstrendur í Kaliforníu hentar Imperial Beach mjög vel fyrir brimbretti, sund og hverskyns athafnasemi.
Í júlí ár hvert er haldin á hafnargarðinum þar þekkt mót í sandkastalagerð. Heimsækið ströndina og skoðið þá furðulegustu og frábærustu sandkastala sem um getur.
Sunset Cliffs
Aðgangur um brattan klettastíg þar sem sums staðar eru þrep. Stórar öldur gera þetta að uppáhaldsstað fyrir brimbrettafólk, fiskimenn og kafara. Ekki er ráðlegt að synda þarna, en sólsetrin eru fögur.
Ocean Beach
Íbúar á staðnum kalla baðströndina „OB“ og á þessari fjölskyldumiðuðu strönd eru svæði fyrir sund, brimbrettareið, strandblak, Frisbee leiki og þar eru snyrtingar. Lífverðir eru á staðnum og fyrir norðan hafnargarðinn er svæði þar sem hægt er að leyfa hundum að hlaupa um.
Pacific Beach
Fólk á staðnum kallar ströndina „PB“ og þetta er góður staður til að synda á, fara á brimbretti og veiða. Skammt frá Crystal Pier.
Tourmaline Surf Park
Þessi litla og fallega strönd er í uppáhaldi hjá brimbrettafólki og köfurum. Ekki er leyft að synda þar.