Þegar þú ert nýkominn til San Diego dettur þér líklega fyrst í hug að fara á ströndina, klæða þig úr skónum og láta sjóinn skola á þér tærnar. En áður en þú ferð ættirðu að athuga að baðstrendurnar við San Diego sem samtals eru einar 70 mílur eru afar mismunandi og sérhver þeirra hefur sín sérkenni. Sumar eru einkum fyrir brimbrettafólk og kafara; aðrar fjarlæg afdrep; og margar eru mjög góðar fyrir næstum hvað sem er.
Baðstrendurnar við San Diego bjóða upp á margt. Svo sem að vera á brimbrettum, stunda sund, köfun, strandblak, flugdrekaflug og ýmislegt annað.
Við margar strendurnar eru veitingahús og verslanir svo hægt er að fá sér bita eftir að hafa verið í sólinni