The San Diego Unified School District er áttunda stærsta skólaumdæmið í landinu og býður upp á ýmiss konar menntun og möguleika fyrir námsfólk alveg frá leikskóla til menntaskóla. Umdæmið þjónar næstum öllu þéttbýlissvæðinu innan borgarmarka San Diego.
Almennir skólar í Kaliforníu eru flestir á fjárlögum. Reksturskostnaður skóla hefur ekki vaxið eins mikið í Kaliforníu undanfarið og í öðrum ríkjum. Bekkir eru yfirleitt fjölmennari en annars staðar. Að meðaltali eru um 25 til 35 nemendur í bekk þar.
San Diego City Schools reka fjölda skóla og öll börn geta sótt þá séu þeir ekki óhóflega þéttsetnir. Sé ekki pláss í skólum í nágrenninu fá nýir nemendur inni í öðrum skólum og ókeypis flutning þangað.
Foreldrar geta einnig innritað börn sín í School Choice Program eða Magnet Program og þá verða þau send í þá skóla þar sem hæfileikar þeirra njóta sín best. Magnet Program er í 45 skólum og þá er um að ræða sérstakt námsefni sem ríkið hefur ekki efni á að bjóða í öllum skólum. Um getur verið að ræða mikla áherslu á vísindi, stærðfræði og tölvufræði, málaralist eða leiklist. Magnet Program er rekið sem hluti af samhæfingaráætlun og skólaumdæmið leggur til ókeypis ferðir.
Valáætlunin School Choice Program gerir ráð fyrir að nemendur geti sótt nám utan síns hverfisskóla. Þó sumir skólar á svæðinu séu fullsetnir og geti ekki tekið við nemendum í valáætluninni er pláss í öðrum skólum ef fjölskyldan hefur áhuga. Ekki er gert ráð fyrir ókeypis ferðum í þessari áætlun.
Skólahverfið rekur einnig umfangsmikla kennsluáætlun fyrir framúrskarandi nemendur og einnig nemendur með sérþarfir.
Flestir skólar, þar á meðal allir unglingaskólar, (high schools) vinna eftir samræmdri kennsluáætlun þar sem gert er ráð fyrir að kennsla hefjist í byrjun september og henni ljúki um miðjan júní. Í 48 skólum er kennt allt árið. Þeir byrja einnig í september en dreifa kennslunni yfir allt árið og gefa nemendum þrisvar sinnum frí.
Í San Diego eru 43 sjálfstæð fræðsluumdæmi þar sem gefinn er kostur á bæði grunnfræðslu og einnig fræðslu fyrir lengra komna. Í hverju umdæmi er sérstök skólanefnd sem kosin er af íbúum á staðnum. Mörk skólaumdæma og borgarmörk fara ekki endilega saman.
Þrenns konar skólaumdæmi eru í San Diego. Grunn- unglinga- og sameinuð. Í sameinuðu skólaumdæmunum er bæði um að ræða grunn- og framhaldsmenntun. Öll skólaumdæmi bjóða uppá grunnkennslu og sérkennslu.
Best er að kynnast mismundandi skólaumdæmum með því að hafa samband við þau. Athuga þarf kennsluáætlun, húsnæði, námsefni, útskriftarkröfur, tómstundamöguleika og annað sem getur verið ólíkt eftir umdæmum.